Hlynur í USA
Myndir
Leitarbox

28.05.2006 18:11:05 / hlynurh

Mættur til landsins....loksins

...over and out

Hlynur


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 17:34:59 / hlynurh

It´s Groundhog Day....

já sagan endalausa heldur áfram...Eric keyrði okkur út á flugvöll í gær um kl 15...vorum því alveg vel tímanlega en stuttu eftir að við vorum búin að tékka okkur inn þá var tilkynnt um seinkunn...reyndar bara 40mín...ég varð nú reyndar pínu stressaður yfir því en Sigga sagðist ekki ætla að stressast fyrir en það yrði meira en 1klst og 30 mín...þegar að okkur var svo tilkynnt að farið yrði kannski í loftið kl 1945 fórum við  bæði að stressast ansi mikið því það var orðið tæpt að ná vélinni í Boston...kl 20 vorum við færð yfir í aðra flugvél..stærri og miklu betri og það átti ekkert að stoppa hana...þegar hún var svo komin út á flugbraut var bara drepið á og sagt að vegna þrumuveðurs yfir Boston var búið að seinka okkur um ca 1klst í viðbót en við myndum nú bara bíða í vélinni...alveg æðislegt...við lentum svo í Boston um kl 23 í gær kvöldi...og Icelandair vélin náttúrlega löngu farin...eftir mörg símtöl til Íslands og símtöl þaðan frá góðu fólki til Boston var hægt að redda okkur með í vélinni sem fer í kvöld..Við gistum því á fínu hóteli hérna rétt við flugvöllinn í nótt og ætlum bara að slaka á þangað til að við komumst heim...sem verður vonandi í fyrramálið. En þegar við komum inn á hótel í gær var verið að loka hótelbarnum en af því að barþjónninn hafði hitt svo marga skemmtilega íslendinga þá var hann alveg til í að selja okkur nokkra bjóra svo við gætum nú aðeins svalað þorstanum...Hann sagði að Íslendingar væru mestu drykkjuhrútar sem hann hefði hitt...og hann er Rússi...spáið í það...
En núna er ca 8klst í flug sem "eigum" að komast með...vona bara það besta...

kv Hlynur og Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 13:41:09 / hlynurh

Kveðjustund

Já, þá er bara komið að því að kveðja Pittsburgh...finnst alveg ótrúlegt að þetta sé búið og ótrúlega stutt síðan ég kom hingað og var t.d að sjóræningjast á netinu hjá Belkin54 og fleirum..Útskriftin var á miðvikudagskvöldið og var ofsalega amerísk og flott...það voru sennilega 200manns þar. Við fengum svona möppu með allskonar viðurkenningum og skírteinum...já kaninn kann sko að búa til skírteini...það er alveg sama hvað þú gerir, þú færð skírteini fyrir það. Eftir útskriftina var haldið á einn bar þar sem hluti af bekknum hittist ásamt nokkrum kennurum...þegar sá bar lokaði var farið á annan sem var opinn aðeins lengur..og þegar hann lokaði var sótt meira áfengið og haldið heim í heimapartý...allt heppnaðist þetta vel og að lokum sátum við Eric og Gunni tveir í B703 til ca 0700 að klára úr síðustu bjórunum...
En Adam var ekki lengi í paradís...dagurinn í gær var svona "þúertaðfaraheimHlynur" því það þurfti að byrja að pakka og þrífa og koma draslinu fyrir í geymslu og fleira....kvöldið endaði svo á því að við Sigga fórum og hittum Eric og Jen og borðuðum með þeim..
Nú er bara að leggja loka hönd á allt...vigta töskurnar....kveðja þá sem eftir er að kveðja og skella sér út á flugvöll um kl 15. Við eigum flug héðan til Boston rétt fyrir kl 1800 og svo flug þaðan heim um kl 2130...svo er bara að vona að þetta gangi allt vel. Ég byrja svo að vinna aftur 9.júní...og það skemmir ekki fyrir að HM í fótbolta byrjar þá :)

En þetta er sennilega síðasta bloggið...nema að ég verði ofsalega duglegur og bloggi áfram...reikna nú sennilega mjög fastlega ekki með því...

Over and out

Hlynur


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 22:16:59 / hlynurh

Loksins, loksins, loksins...

þá má segja að Hlynur sé orðinn Paramedic eða Bráðatæknir...síðasta próftörnin kláraðist í dag...útskrift annað kvöld og vonandi brjálað stuð...en ég nenni ekki að blogga meira í dag...kom heim fyrir 30mín síðan eftir að hafa verið í skólanum í verklegum prófum síðan kl 08 í morgun...

skál...

Hlynur


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 23:41:19 / hlynurh

Brjáluð próftörn.....aftur...

já...geðveikin heldur áfram..Í dag vorum við að taka svona æfingar verkleg NR próf ...þ.e vorum sett í ca 13 verklegar prófstöðvar með öllu tilheyrandi..á morgun er svo svipaður dagur en svo á mánudag verður aðal bóklega NR prófið og á þriðjudag fer svo allur dagurinn í verkleg próf..gaman gaman...Þessi "æfingar"próf gengu bara vel og ég er bara nokkuð rólegur fyrir þriðjudaginn...svo er það bara mánudagurinn þ.e bóklega prófið...ég er ekki alveg eins rólegur fyrir það...er reyndar búinn að vera nokkuð mikið rólegur í lærdómnum...kannski aðeins of rólegur en þetta kemur bara allt í ljós...og svo er bara um að gera að hafa gaman að þessu öllu saman...ég er líka að fara heim eftir 6daga...kem beint heim í kosningar og svo þurfum við Sigga að fara á fimleikasýningu hjá Elfu Dís á laugardaginn og hún er búin að segja mér það að hún verður alveg brjáluð ef við mætum ekki...og hananú..

En hérna er núna 16stiga hiti (kl er um 20) og það á eftir að hlýna alla vikunna...og verður 27°hiti þegar ég yfirgef þetta ofsalega land eftir 10mánaðar veru... það var nú bara mjög notalegt að sita út á Shady Grove Cafe(þeir sem hafa verið hérna þekkja staðinn) og sötra nokkar Yuenglings í sólinni nartandi í nacho...
Svona er USA í dag...eða kvöld..

kv Hlynur


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 02:44:56 / hlynurh

Nóg að gera...

...já eða þannig. Reyndar kíkti Sigfús bróðir hingað í heimsókn...ég segi kíkti því hann kom hingað á laugardagskvöldið og fór svo í dag (mánudag) um kl 16...stutt en gaman og við náðum bara að koma nokkuð mörgum bjórum niður og finnst mér það vera afrek miðað við þann stutta tíma sem við höfðum. Ég smakkaði sennilega versta drykk sem hefur nokkurn tíman verið búinn til, Bloody Mary. Mér finnst hreinlega að það ætti að bannfæra þann sem að fann upp á þessum drykk....hverjum datt í hug að blanda vodka út í tómatsafa og krydd og setja svo sellerí, sem er líka versta grænmeti í heimi, út í þennan óþvera...ég kúgast bara við að skrifa þetta...þessi litli sopi sem ég tók kostaði það að ég varð að þamba það sem ég átti eftir af bjórnum mínum og panta mér annann í snatri..
Ég náði að þræða honum Sigfús í gegnum mall-ið hérna og það var gaman að sjá hvernig þau (Sigfús og Sigga) gátu hraðverslað, já það er nýtt sem ég varð vitni að í gær...áður en við svo skelltum okkur út að borða og svo á barinn..Síðan var honum skutlað út á flugvöll með troðfullar töskur...ég náði að koma smá af dótinu mínu með því ég er svona að horfa á allt sem ég er með hérna og aðeins farinn að spá í það hvernig ég á að koma hlutunum heim...enda ekki seinna vænna því ég fer heim eftir 10 daga.....jjjjjaaaaahhhhhhúúúúú...

bless í bili,

Heimfarinn tilvonandi


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 16:08:44 / hlynurh

Það fer ekki mikið fyrir blogginu þessa dagana...

enda hef ég svo sem ekki frá miklu að segja....Núna er bara slakað á...farið á barinn og sötraðir nokkrir bjórar til að stytta stundirnar...farið í gymmið (eins oft og hægt er). Svo er ég að reyna að fá sjálfan mig til að kíkja í bók fyrir NR prófið sem nálgast óðfluga...aðeins hraðar en ég bjóst við...en það er bara svo erfitt að byrjað að lesa aftur...Ég held að ég verði bara að játa mig sigraðan fyrir lestrarletinni....já ég er gjörsamlega búinn að tapa þeirri baráttu....og ég er eiginlega að tapa líka fyrir "nenniekkiaðbloggaletinni".....svo eru líka allir hættir að skrifa komment og svoleiðis...Meira að segja 0010 sem skrifaði oft á dag :)

bless í bili

H


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 15:15:04 / hlynurh

Síðasta vaktin búin...

Já góðir íslendingar...ég held bara að þetta sé að verða búið. Ég tók síðustu vaktina á Medic 6 í gær. Þetta var nú reyndar rólegheita vakt...leit reyndar nokkuð vel út á tímabili þegar við vorum kallaðir úr í hnífstungu...þegar við komum svo á staðinn þá var "fórnarlambið" farið eitthvað annað...Ég tók líka vakt á Stat-Medevac í fyrradag eins og ég bloggaði aðeins um í síðasta bloggi. Ég hitti Quincy hérna fyrir utan hjá mér um kl 0600 og svo keyrðum við einhvert lengst í burtu í ca 45 mín áður en við komum að litlu einbýlishúsi með forlátan þyrlupall fyrir utan...þetta var sem sagt heimkynni Medevac 16. Hann kynnti mig fyrir fólkinu þ.e flugmanninum og hjúkkunni sem er í þessari áhöfn ásamt einum medic. Þetta var bara ágætis fólk. Það var reynar svo mikil þoka fyrstu 3klst að við gátum ekki flogið en um kl 11 fórum við í loftið en urðum að hætta við því spítalinn sem við ætluðum að sækja sjúklinginn á var á kafi í þoku...Næsta útkall kom svo rétt fyrir kl 1300. Við áttum að sækja 6mánaðar gamalt bara á spítala í ekki frægari bæ heldur en Punxsutawney en þar býr nefnilega múldýrið Phil og lék aðalhlutverkið í Groundhogday ásamt Bill Murray. Þegar við vorum á leiðinni þanngað fór áhöfnin að spá í það ef að mamman vildi nú fara með...þá yrði líklegast að skilja mig eftir á meðan þau flygu til Pitt og aftur til baka, ca 2klst. Ég blótaði nú í hljóði en hugsaði að það væri þó ágætt að vera skilinn eftir í þessum merka bæ...ég gæti kannski labbað aðeins um og reynt að hitta þennan Phil eða jafnvel Bill Murray (er hann ekki ennþá fastur þarna eða er ég að rugla) Eftir mikla útreikninga um þyngd, eldsneyti og fleira þá sagði flugmaðurinn að ef að sjúklingurinn og mamman væru ekki yfir 100kg þá gæti hann tekið mig líka með. Ekki var ég nú bjartsýnn eftir þær upplýsingar miðað við vaxtarlag þessara þjóðar. Þegar við komum svo inn á spítalann þá var sennilega minnsta og léttasta manneskjan þarna einmitt mamman og því gat ég farið með...það munaði reyndar ekki nema ca 10kg...ég get kannski líka þakkað mér fyrir að hafa haldið mér svona þokkalega innan marka :)  Síðan tók við flug til Pitt sem tók ca 30mín og ég þurfti því miður að sitja fram í hjá flugmanninum. Flugmaðurinn heitir Ken og er búinn að vera þyrlu flugmaður hjá US-Airforce í +20ár...hann flýgur Apache árásarþyrlum eina helgi í mánuði núna fyrir herinn...ekki leiðinlegt það. Við lentum næst á CHP í Pitt og í staðin fyrir að fylgja sjúklingnum á Bráðamótökuna þá skellti ég mér bara frekar með flugmanninum í smá flugtúr til að taka eldsneyti og fleira....Þetta var því bara hin besta vakt og alveg þræl gaman að fá að prófa þetta.
Núna standa einhverjar viðgerðir hérna í Kenmawr (húsið sem ég bý í) og ég las einhversstaðar að það ætti að taka heita vatnið af kl 1500 í dag. Núna svo þegar ég ætlaði að byrja að þrífa, Sigga kemur nefnilega í kvöld, þá komst ég að því að það er bara ekkert vatn...ekki get ég þurkað af, þvegið, vaskað upp, skúrað með engu vatni..þannig að hin ofsafengnu þrif sem áttu að vera í dag verða bara að bíða betri tíma...djö....
Mér finnst núna vera alveg ofsalega stutt eftir...bara ca 20 dagar...reyndar var Elfa Dís ósammála mér þegar ég sagði að það væru bara stuttir 20dagar eftir...henni finnst 20 dagar vera mikið og eiginlega alltof langt... ég hlakka alveg endalaust til að komast heim og hitta hana.

Jæja ætla að reyna að gera eitthvað....ég hef samt ekkert að gera og allan daginn til að gera það :)

Bless í bili

Hlynur


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 09:22:29 / hlynurh

Þetta er nú bara rugl

já, kl er 0500 og ég er vaknaður eftir ca 4klst svefn. Ég er að fara á vakt á Stat (www.statmedevac.com) sem eru sjúkraþyrlur sem fljúga hérna allan sólarhringinn..Ég er að fara á þessa vakt með Quincy sem að er medic sem útskrifaðist með Binna, Sigga J og Venna. Við þurfum að byrja á því að keyra einhvert í rassgat í ca 1klst til að komast á staðinn og svo tekur vaktin 12klst...gaman gaman...og þetta er vakt sem að ég er bara að taka af áhuganum einum saman...þarf í raun og veru ekki að taka hana en bara gaman að fá að fljúga smá í þyrlu. Ég verð nú samt að viðurkenna að þegar síminn vakti mig kl 0450 í morgun þá var ofsalega freistandi að sofa lengur...ég er búinn að snúa sólarhringnum við eftir allt þetta frí...en þetta verður bara stuð, þreytt en stuð

Bless í bili

Hlynur


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 18:57:47 / hlynurh

Hvað á ég eiginlega að gera af mér...

..já strákarnir fóru á miðvikudaginn og ég tók svo næst síðustu vaktina í þessu námi í gær á Medic 6. Það er aðeins öðruvísi að vera með þeim Jeff Jones og Wes gamla...ég fékk ekki að gera neitt í gær nema að tala við sjúklingana og sjá um öll samskipti við læknana...þeir sögðu að þeir vissu alveg að ég kynni það sem þyrfti að gera og því ætti ég bara að segja þeim til verka og sjá um að tala við læknana og þess háttar. Síðustu vaktina tek ég svo á fimmtudaginn eftir viku...
Eini gallinn við þetta allt saman er að ég hef bara ekkert að gera...ég er búinn að taka til, skúra, ryksuga, bóna svörtu rispuna (já spáið í það), versla, fara í ræktina og er hreinlega farið að skorta verkefni til að hafa eitthvað fyrir stafni
...Fór niður í skóla í dag til að fá að vita einkunirnar mínar fyrir þessa önn...og þær hefðu ekki getað verið betri og er ég bara mjög sátttur við það.
Hérna er farið að hitna alla svaðalega...núnar er 17°hiti og það á víst að verða 21°á morgun og svo heldur þetta áfram að klifra upp á við allan maí mánuð. Það er svolítið skrítið að hugsa til þess að námið sé búið..þ.e. að ég eigi ekki eftir að læra neitt meira í þessu. Maður er orðinn svo vanur að vera að lesa og spá og spögulera í þessum fræðum og vera svo bara allt í einu kominn í frí í nokkrar vikur..Ég ætla nú samt að reyna að byrja fljótlega að glugga aðeins í efninu aftur fyrir NR prófið sem verður 22.-23.maí....
Jæja...ætla að halda áfram að horfa upp í loftið...

Bið að heilsa í bili

kv H


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 19:33:20 / hlynurh

Mánuður í útskrift...

......og það eina sem ég þarf að gera fyrir þann tíma er að klára tvær vaktir á Medic 6...
Núna eru Helgi og Gummi hjá mér...aka Hlunkurinn og Lilli Niðurgangur...og ég held að hlutabréf í BUD incorp. hljóti að hafa rokið upp...Það er óstjórnlegt magn af BUD léttum sem hefur verið skolað niður...við erum samt góðir að halda línunum í lagi með því að vera bara í léttum bjór :)  Við erum búnir að gera það helsta sem hægt er að gera hérna...kíkja í búðir, út að borða og drekka bjór...Fórum í dag niður í skóla þar sem að þeir hittu kennarana og annað skólalið...Hlunkurinn og Lilli Niðurgangur verða nefnilega í skólanum hérna í ágúst og taka því við af okkur Gunna að halda uppi heiðri Íslensku Víkinganna sem hefur líka verið alveg stórglæsilega frábær ef ég reyni nú að vera alveg hlutlaus....Ég er líka búinn að fara með þá í heimsókn á Medic 6 og á morgun verður stefnan tekin á Medic 1 en Eric og Gunni verða þar á vakt.....

Nenni ekki að skrifa meira, læt næst heyra í mér þegar þeir verða farnir...

Adios
Hlynur


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 18:22:08 / hlynurh

Þetta er buid!!!!!!!!!!! JJJJJjjjjjaaaaaaaahhhhhhhhúúúúúúú

Prófin búin og eg er farinn a barinn....bid ad heilsa i bili

kv Hlynur


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:10:29 / hlynurh

Gleðilega páska

Já, ég sit núna og er að háma í mig páskaegg frá NS númer 4 sem ég fékk sent frá Siggu...Ég er reyndar líka að reyna að læra fyrir próf en ég verð bara að segja að það er ekki mikið eftir af lestrarþolinu og ég finn mér eiginlega nánast allt annað að gera en að læra...t.d að blogga :)
Ég keyrði mömmu, pabba og Helgu út á flugvöll áðan...við erum búin að hafa það gott saman og bara fínt að fá þau í heimsókn...núna er ekki nema rúmur mánuður í heimferð og það var svolítið skrítið að senda dót frá mér heim...ég held að ég sé aðeins farinn að fatta það að þetta sé að verða búið...

En núna verð ég víst að reyna að læra eitthvað...ætla svo að borða hangikjöt í kvöld sem að mamma kom með :)

kv H


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 00:12:53 / hlynurh

Síðasti skóladagurinn var í dag...

...vildi bara segja ykkur frá því...Lokaprófin verða svo á mánudag og miðvikudag...tvö stór á mánudaginn, auðvitað og svo eitt á miðvikudag....gaman að því..

kv H


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 20:58:39 / hlynurh

7 vikur eftir...

Já, núna er eins og tíminn sé farinn að líða eitthvað hraðar hérna, allavega var ég eitthvað í gærkvöldi að horfa á dagatalið og tók þá eftir því að það voru nákvæmlega 7vikur í að ég komi heim...skrítið...samt kannski ekki.
Í dag var ég sennilega að klára síðustu vaktina mína á Medic 1, þetta var sem sagt vakt númer 11 og því á ég bara eftir að taka 4 vaktir á Medic 6. Þetta eru þessar 15 vaktir sem ég á að vera búinn með fyrir 17.maí þannig að ég er aðeins á undan áætlun en það er kannski bara líka í lagi því mamma, pabbi og Helga systir eru á leiðinni, í þessum skrifuðum, yfir Atlantshafið á leiðinni í heimsókn til mín og þau munu vera hérna í viku. Síðan tek ég lokaprófin og rétt þegar þau klárast koma tveir vaktafélagar mínir hingað til að taka út alla barina sem eru í Pitt...Eftir að þeir fara hef ég ca 1 og hálfa viku til að gera allt klárt þ.e. klára þessar 4 vaktir áður en að Sigga kemur en hún ætlar að vera hjá mér þanngað til að þetta klárast. Ég ætla að nýta tímann hérna í lokin til að gera eitthvað annað heldur en að læra og vinna....er eiginlega búinn að vera gera það í ca 9mánuði...ótrúlegt en satt.

kv Hlynur


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Leitarbox